Poll without page-refresh
Article on other languages:
Ávöxtur (eða aldin ) er samkvæmt grasafræði þroskað afsprengi egglegs dulfrævings sem umlykur fræ hennar. Í matargerð á hugtakið hinsvegar oftast við þá ávexti sem eru sætir og holdugir , t.d. ferskjur , epli og appelsínur . Dæmi um afurðir sem eru ávextir samkvæmt grasafræðilegri skilgreiningu en eru ekki taldir sem slíkir í matargerð eru agúrkur , maís , pipar (t.d. chillipipar ), hnetur , eggaldin og tómatar .
Ávextir sem ekki innihalda fræ eru nefndir geldaldin . Afsprengi plöntu sem líkist ávexti en flokkast ekki sem ávöxtur er í grasafræði kallað skinaldin .
Tengt efni
Heimild
Tenglar