|
Kannabis (fræðiheiti: Cannabis) er dulfrævingaættkvísl sem í eru þrjár þekktar tegundir (Cannabis indica, Cannabis ruderalis og Cannabis sativa). Ættkvíslin er einnig þekkt sem hampur en það heiti er yfirleitt notað yfir plöntur í ættkvíslinni þegar þær eru ekki notaðar sem vímuefni. Sem vímuefni er það oftast í formi þurkaðra blóma (marijuana), trjákvoðu (hass), eða ýmissa útdrátta sem kallaðir eru hassolía.
|
This article is from Wikipedia. All text is available under the terms of the GNU Free Documentation License.