|
Vísindaleg flokkun er flokkun sem líffræðingar beita til að flokka lifandi og útdauðar lífverur. Nútíma flokkun á rætur sínar að rekja til verka Carolusar Linnaeusar sem flokkaði lífverur samkvæmt sameiginlegum líkamlegum einkennum. Þessi flokkun hefur verið endurbætt síðan Charles Darwin kom fram með þróunarkenningu sína.
Dæmi
Meðfylgjandi er dæmi um venjulega flokkun á fimm tegundum en þær eru: Ávaxtafluga (Drosophila melanogaster) sem er svo algeng í erfðafræðirannsóknastofum, maður (Homo sapiens), gráerta (Pisum sativum) sem Gregor Mendel notaði við uppgötvanir sínar í erfðafræði, berserkjasveppur (Amanita muscaria) og E.coli bakterían (Escherichia coli). Hinir átta flokkar eru feitletraðir. Einnig koma fram undirflokkar.
Tenglar
|